Sunday, February 24, 2008
Hi everyone
We had a mentor weekend this Saturday. The group met at Croydon Creek Nature Center and hiked in the area.
What a beautiful place. It had been snowing on Friday and some icy rain. Therefore the trails were a bit slick, but
we didn't let that stop us. After the hike my fellow hiker and I checked out some fundraising oppotunities.
Í gær fórum við í göngu sunnan við Frederick, í Rockville. Það hafði snjóað á föstudaginn þannig það
var töluverð hálka á stígnum. Við létum það ekkert á okkur fá og nutum þess að vera úti í náttúrunni. Að göngunni
lokinni þá fór ég og ein önnur úr hópnum til þess að kanna möguleika til fjáröflununar. Síðar um daginn fór ég niður
í miðbæ og skildi eftir upplýsingar hjá tíu fyrirtækjum í von um að einhver þeirra geti hjálpað.
10:38 am est
Monday, February 18, 2008
This past Saturday
The MD Chapter group got together for a hike on the NCR Trail, just north of Baltimore. It was a beautiful day
and a wonderful hike. I didn't really feel like getting up that morning so early, but it was well worth it. It
is so much fun to be able to share this great experience with everybody. My friend Melissa used to train on this trail
for her marathon. So it made it extra special to hike there and think of all the hard work she did on that trail.
After the hike we went to a gear clinic at the REI in Timonium. What a nice store. I just know if my friend Ágústa
and my sister would have been there with me. We might still be there ;)
Ég ætlaði nú ekki að nenna á fætur svona snemma á laugardagsmorgni. Ég hafði boðist til þess að keyra hluta af
hópnum frá Frederick svæðinu þannig það var ekki um annað en að ræða en að koma sér á fætur og af stað. Ég sá nú ekki
eftir því. Ég var auðvitað á síðustu stundu að reyna að koma mér út hérna. Sjá til þess að krakkarnir væru með
allt á hreinu og að ég væri með allt sem ég þurfti. Auðvitað fór það þannig að ég gleymdi myndavélinni minni og vatninu.
Ég gat nú ekki annað en hlegið af sjálfri mér. Gangan var alveg yndisleg. Melissa vinkona mín hún æfði sig á NCR
stígnum fyrir maraþon sem hún tók þátt í. Því var mjög gaman að koma þarna og sjá og hugsa til hennar. Þetta
er rétt norðan við Baltimore eða í um klst keyrslu héðan. Eftir gönguna fengum við smá kennslu í REI búðinni.
Þar var rætt um hverning hverning maður á að vera búinn undir göngur í mjög heitu veðri. Ég veit svo sem allt um að
ganga í köldu veðri en ekkert um að ganga í hitanum. Þetta er geðveik útivistarbúð og ég veit að
ef Ágústa vinkona og Kristín systir hefðu verið með þá væru við sennilega enn þar.
9:15 am est
Thursday, February 14, 2008
hi everyone
I have had some requests to post some photos of myself here. So, I put a couple of pictures on this site.
Hæ, hæ, ég er búin að fá nokkrar beiðnir um að setja inn myndir af mér á síðuna. Þannig nú eru komnar tvær :)
1:58 pm est
Sunday, February 10, 2008
Breakfast Kickoff
Wow, what can I say. It was fantastic. The amazing thing was that being around all these wonderful people
that I had never met before felt great. We are all there to help out and doing what we love -hike- We also got to meet
Eria Goodweaver who is a survivor. She had to have a bone marrow transplant and her brother Brooks was the perfect match.
What heroes they are. Her mom Dana spoke at the breakfast. She was so brave standing there with her beautiful
children talking about that to the date there are five years since her daughter was diagnosed. I have a daughter that
is a year younger. Eria even looks a bit like my daughter, what a sweet girl. How blessed I feel to
have healty children and being able to contribute in this way. I am so thankful for that. How wonderful it
was to meet these amazing people. Love to you all!
Þessi morgunverðarstund var stund sem ég mun aldrei gleyma. Þarna var ég -einhverstaðar í Baltimore. Í herbergi
sem var fullt af fólki sem ég hafði aldrei séð áður. Það undarlega var að þrátt fyrir það, þá fann maður að þessi hópur
var samstíga. Allir höfðu sögu að segja, hvers vegna þeir/þær voru að taka þátt í þessu. Þessi hópur ber
virðingu fyrir lífinu, náttúrunni, umhverfinu og tilbúnir til þess að leggja sitt af mörkunum í fjáröfluninni.
Það var 11 ára gömul stúlka þarna með móður sinni og bróður. Hún var geind með blóðkrabba fyrir fimm árum. Það
þurfti að skipta um merg í henni en hún fékk merg hjá bróður sínum. Hvílíkar hetjur. Ég hugsaði til dóttir
minnar þar sem móðir þeirra stóð og talaði um það sem þau höfðu gengið í gegnum. Dóttir hennar er árinu eldri en dóttir
mín. Það fengu allir tár í augun þegar hún talaði. Hún var svo dugleg að ræða um þessi hjartans mál
þótt það væri henni erfitt. Það sem maður getur verið þakklátur að eiga heilbrigð börn. Hvílk blessun það er að
geta hjálpað svona góðu málefni. Nú hefjast göngurnar nk laugardag og hópurinn mun ganga saman á hverjum laugardegi
fram í júní. Eria, bróðir hennar Brooks og móðir þeirra munu ganga með okkur þegar þau geta. Kærar þakkir
fyrir allt sem þið hafið lagt af mörkum. Ástarkveðjur!
6:38 pm est
Thursday, February 7, 2008
Vá
Þið eruð alveg ótrúleg, það er ekki að spyrja af íslendingum. Ástarþakkir fyrir allt saman. Það er meiriháttar
að lesa yfir öll skilaboðin í Gestabókinni. Takk, ást og kossar.
Thanks so much to everyone. You guys have acted so quickly. I cant thank you enough. Stop by often
to see the progress. Love.
7:41 pm est
The time is here
The fundraiser kickoff Breakfast is this coming Saturday, there I will meet other people that are doing the Hike For
Discovery. We will be training hard before doing the hike in Yosemitee June 14-17th. Every Saturday will be dedicated
to hiking with the group. The rest of the week I will be training on my own. I will keep everyone updated on this
site. So, stop by often.
Jæja þá er fjáröflunin að hefjast. Ég fer í morgunverð á laugardaginn og mun hitta þar annað fólk sem er að taka
þátt í þessari fjáröflun. Við munum síðan fara í smá göngu eftir morgunverðinn. Það er hörku undirbúningur famundan
hjá mér. Á hverjum laugardegi mun hópurinn hittast og ganga. Ég mun síðan sjá um að koma mér sjáf í form hina
dagana. Ég mun setja inn á þessa síðu upplýsingar um hvað við erum að gera. Þannig endilega kíkið við og fylgjist
með.
12:14 pm est