|
|
 |
|

Hike For Discovery recruits hikers to raise money to help find cures for blood cancers while training for
a final goal hike. This time it is in Yosemite California.
|
|
| Tómas og eiginkona hans Halldís |
Hike For Discovery - Fjáröflunarsíða - Smellið Hér
Half Dome - Gangan Sem Ég Stefni Á
Our lives are filled with simple joys and blessings without end, And one of the greatest
joys in life is to have a friend.
|
 |
|
|
Monday, April 28, 2008
Thanks
Hi, hi, I just want to say thanks to everyone that have supported me so far. You all are making a difference in
people's lives. This past Saturday was a mentor weekend but our mentor was hit by a car when she was crossing a
street in Baltimore. She is still recovering. We are all thankful that she will be okay. So, I did a hike
with my friend close to home. The day was just perfect for a hike.
Hæ allir saman og ástarþakkir fyrir allan stuðninginn. Þið eruð að styrkja frábært málefni. Laugardagurinn
átti að vera leiðbeinanda helgi en Það fór illa fyrir leiðbeinanda okkar. Hún varð fyrir bíl þegar hún vara að fara
yfir götu í Baltimore. Hún er enn að ná sér en það hefði getað farið verr. Þannig ég fór í göngu með vini mínum
í staðinn, svo ég fengi nú einhverja æfingu. Það veitir ekki af ef ég á að geta komist uppá Half Dome. Dagurinn
var alveg pottþéttur sól og sumarylur.
7:47 am est
Sunday, April 20, 2008
Hæ allir saman
We had a great time this Saturday as we hiked 10 miles of the Appalachian Trail. The weather was just perfect.
We started at Pen Mar - First we hiked north into Pennsylvania, but then turned back and hiked south. There were
a lot of rocks, so it was just beautiful. I love jumping between the rocks so this was a hike I really enjoyed. I
am getting to know my fellow hikers and I think they are just amazing. I really admire all that they are doing.
Við gengum 16 km í gær. Dagurinn var alveg yndislegur. Veðrið alveg pottþétt. Við gengum AT leiðina
suður eftir. Fórum þó fyrst norður eftir til þess að geta sagt að við hefðum gengið til Pennsylvania. Þetta var
ákaflega falleg leið. Ég hugsaði með mér að það væri nú erfitt að vera með þungan bakpoka á sumum stöðum þ.s. það
var mikið grjót sem þurfti að klöngrast yfir. Ég fílaði það nú alveg í botn. Fólkið sem ég geng með er alveg
yndælis fólk. Það er gaman að kynnast þeim og dásamlegt að eyða laugardögum mínum með þessum hóp.
3:48 pm est
Sunday, April 13, 2008
Hi everyone
This Saturday we headed 20 miles north of Frederick to Catoctin Mountain Park. It was a moderately
challenging day with a few climbs as we visited a waterfall, 4 overlooks, and a huge rock formation. The best part was
the surprise hill that seemed never ending towards the end of our hike. Perfect way to get into shape for Half Dome
at Yosemite.
Við gengum 12 km í gær. Það var æðislegt að þurfa ekki að ferðast mjög langt til þess að komast í þessa göngu þ.s.
hún var í fjöllunum hérna við Frederick. Það var margt fallegt að sjá, náttúran alveg yndisleg. Það vildi svo
skemmtilega til að við urðum vitni að því þegar við vorum á einum útsýnis-staðnum -að það var ungur maður að biðja um hönd
kærustu sinnar. Við klöppuðum fyrir þeim og óskuðu þeim til hamingju. Heldur betur rómantískur drengur.
Þau voru svo sæt þarna saman.
10:51 am est
Sunday, April 6, 2008
New Page
Just added a page with pictures I took yesterday during the fundraiser, to the site.
Var að bæta við síðu með myndum frá korta og bókamerkjasölunni í gær.
11:43 am est
Caledonia State Park, PA
Got up early to drive for an hour to make it to this Saturday hike. Our hike leader checked out how long it would
take us to hike one mile and we made it in 20 min. This hike was absolutely beautiful. Lots of uphill so this
was a good exercise. After the hike I rushed back to setup a booth downtown Frederick. My friends Helen and Erin
helped me hand out cards and bookmarks for a donation to the LLS. I spent all last week making cards and bookmarks with
my photgraphs mostly taken in Maryland and Iceland. So at last I found a good way to help others with my passion - photography
and nature. A huge Thank You to all that have sponsored me. You are the greatest. Love!!!
Jæja kæru íslendingar. Þetta er búið að vera annasöm vika. Ég eyddi vikunni í það að búa til kort og bókamerki
úr ljósmyndunum mínum. Flestar teknar á Íslandi og Maryland. Ég fór eldsnemma á fætur til þess að vera mætt korter
í átta til Caledonia, PA sem er í næsta fylki við MD. Leiðsögumaður okkar kannaði hvað það tók okkur langan tíma
að ganga eina mílu eða 1.6 km, en það tók okkur 20 mín. Síðan gengum við tæpa 12 km. Það tók nokkuð á þ.s.
þetta var mikið uppá við og töluvert bratt á nokkrum stöðum. Þetta var því frábær æfing fyrir gönguna sem ég mun ganga
í Yosemite, en þar mun ég ganga um 15 km upp og 15 km niður. Þá er bara að vona að mér takist það.
Ég ætla að taka íslenskan stein með mér þangað og skilja eftir uppá Half Dome í Yosemite í minningu hans Tomma frænda
og allra hinna sem hafa tapað baráttunni við blóðkrabba og þeirra sem eru enn að berjast við hann. Jæja en eftir gönguna
þá hraðaði ég mér heim til þess að ég gæti drifið mig niður í bæ ásamt tveimur vinkonum mínum, Helen og Erin sem voru svo
frábærar að bjóða mér hjáp við fjáröflunina. Við settum upp borð í miðbænum og reyndum síðan að selja kortin og bókamerkin
sem ég var búin að búa til. Þetta var því langur dagur, en frábær. Það er æðislegt að geta skapað og notað það
í gott málefni. Ástarþakkir til ykkar allra sem eru búin að styrkja mig. Ég gæti þetta ekki án ykkar. Eitt
stórt faðmlag til ykkar allra. Takk, takk og aftur takk.
11:04 am est
|
|
|
 |
|
|
|
 |
|
|
|
|
|
 |